Nathan & Olsen ásamt Ekrunni hafa tekið yfir sölu á tei frá A.C. Perchs til veitingastaða og áfengislausum valkostum frá Tefélaginu. Um leið og við þökkum fyrir viðskiptin síðastliðin ár viljum við hvetja rekstraraðila til að spyrjast fyrir um úrvalið með því að senda póst á soludeild@ekran.is - Kær kveðja frá Tefélaginu

Fyrir aðrar tevörur á vefsíðunni getur þú notað kóðan TAKK til að fá 50% afslátt.

Karfa

Karfan er tóm

Halda áfram að skoða

Camellia sinensis - plantan sem gefur okkur allt te

Allt te er afurð trjárunna sem á fræðimáli heitir Camellia sinensis.
Teplantan, sem talin er upprunnin í Yunnan-héraði í Kína, er til í nokkrum ólíkum afbrigðum. Í Kína og Japan er ræktaður runni sem ber fínlegt og viðkvæmt lauf en í Assam-héraði í Indlandi rækta bændur teplöntur sem bera stór og safarík blöð.
Bragðeiginleikar telaufanna eru ólíkir eftir því hvar og hvernig plantan er ræktuð. Teplanta í mikilli hæð yfir sjávarmáli vex hægar og gefur annað tebragð en planta sem býr við raka, hita og aðrar kjöraðstæðu.
Ástand jarðvegs hefur áhrif á bragðið og einnig hversu berskjölduð plantan er fyrir veðri og vindum. Aldur teplöntunnar skiptir máli – því eldri sem hún er því fjölþættara og betra er bragðið.
Teplantan er eins og mannskepnan, þroskast og batnar með aldrinum og verður best ef hún fær hæfilegt mótlæti.